• Vigdís bak við tjöldin

  • 著者: RÚV Hlaðvörp
  • ポッドキャスト

Vigdís bak við tjöldin

著者: RÚV Hlaðvörp
  • サマリー

  • Leikna sjónvarpsþáttaröðin um Vigdísi Finnbogadóttur hefur verið í þróun í yfir tíu ár enda vandasamt verk að koma uppvexti og mótunaröflum fyrsta þjóðkjörna kvenforseta heims í handritaform. Hvaða áskoranir fylgja því að túlka Vigdísi Finnbogadóttur, konuna sem braut blað í heimssögunni, og hvernig er hægt að endurskapa veröldina sem blasti við íslensku þjóðinni á fimmta til áttunda áratug síðustu aldar?


    Í þessum þáttum fáum við innsýn í handrita- og framleiðsluferli þáttanna. Leikstjórar, leikarar, leikmynda- og búningahönnuðir eru meðal þeirra sem sitja fyrir svörum og segja okkur sögurnar bakvið tjöldin.


    Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    RÚV Hlaðvörp
    続きを読む 一部表示

あらすじ・解説

Leikna sjónvarpsþáttaröðin um Vigdísi Finnbogadóttur hefur verið í þróun í yfir tíu ár enda vandasamt verk að koma uppvexti og mótunaröflum fyrsta þjóðkjörna kvenforseta heims í handritaform. Hvaða áskoranir fylgja því að túlka Vigdísi Finnbogadóttur, konuna sem braut blað í heimssögunni, og hvernig er hægt að endurskapa veröldina sem blasti við íslensku þjóðinni á fimmta til áttunda áratug síðustu aldar?


Í þessum þáttum fáum við innsýn í handrita- og framleiðsluferli þáttanna. Leikstjórar, leikarar, leikmynda- og búningahönnuðir eru meðal þeirra sem sitja fyrir svörum og segja okkur sögurnar bakvið tjöldin.


Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

RÚV Hlaðvörp
エピソード
  • Fjórði þáttur
    2025/01/16
    Björg Magnúsdóttir og Ágústa Ólafsdóttir tóku að sér það vandasama verk að koma uppvexti og mótunaröflum fyrsta þjóðkjörna kvenforseta heims í handritaform. Í þessum þætti fáum við innsýn í handritagerð þáttanna auk þess sem leikstjórinn Tinna Hrafnsdóttir og leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir leiða okkur í gegnum vinnu sína og senurnar sem birtast okkur í lokaþættinum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    48 分
  • Þriðji þáttur
    2025/01/06
    Leikkonan Elín Hall og leikstjórinn Björn Hlynur Haraldsson segja hlustendum frá því hvernig þau nálguðust erfiðar og átakanlegar senur í leiknu þáttaröðinni Vigdís. Við fáum líka innsýn í búningahönnun þáttanna en búningahöfundurinn Helga I. Stefánsdóttir leiðir okkur í gegnum sína vinnu sem felur ekki einungis í sér að velja réttan klæðnað á Vigdísi og aðrar lykilpersónur heldur líka að skapa bakgrunn og sögu hundruð aukaleikara með réttum fatnaði. Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir og leikstjórinn Tinna Hrafnsdóttir segja okkur líka frá sinni nálgun að verkefninu en Tinna leikstýrir Nínu Dögg Filippusdóttur í hlutverki sínu sem Vigdís Finnbogadóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    45 分
  • Annar þáttur
    2025/01/01
    Leikmyndahönnuðurinn Heimir Sverrisson hafði veg og vanda af því að búa til veröldina sem birtist okkur í leiknu sjónvarpsþáttaröðinni Vigdís. Í þessum þætti segir hann okkur frá því hvernig hann endurskapaði fimmta til áttunda áratug síðustu aldar. Við ræðum líka við Björn Hlyn Haraldsson, annan leikstjóra þáttanna, og leikkonuna Elínu Hall sem leikur Vigdísi unga að árum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    45 分

Vigdís bak við tjöldinに寄せられたリスナーの声

カスタマーレビュー:以下のタブを選択することで、他のサイトのレビューをご覧になれます。