Audible会員プラン登録で、20万以上の対象タイトルが聴き放題。
-
Kynjaborðið, gullasninn og kylfan í skjóðunni
- ナレーター: Árni Beinteinn Árnason
- 再生時間: 23 分
カートのアイテムが多すぎます
カートに追加できませんでした。
ウィッシュリストに追加できませんでした。
ほしい物リストの削除に失敗しました。
ポッドキャストのフォローに失敗しました
ポッドキャストのフォロー解除に失敗しました
聴き放題対象外タイトルです。Audible会員登録で、非会員価格の30%OFFで購入できます。
あらすじ・解説
Skraddari nokkur átti þrjá syni og eina geit. Mjólkin frá geitinni var aðalfæða heimilisfólksins og þurfti því kjarngott fóður á hverjum degi. Þegar geitin tekur upp á því að ljúga því til að hún sé svöng og þreytt eftir dagsferðir sínar með sonunum þremur, rekur skraddarinn þá að heiman. Fljótlega rennur þó upp fyrir skraddaranum að hann hafi verið blekktur. Mörgum árum síðar halda synirnir þrír heim á ný og hyggjast færa föður sínum verðmætar gjafir sem búa yfir töframætti; kynjaborð, gullasna og kylfu. Þegar til kastanna kemur hafa gjafirnar misst allan töframátt og synirnir enn á ný ásakaðir um lygar. Nú eru góð ráð dýr og synirnir þrír þurfa að leysa gátuna um horfna töframáttinn og endurheimta orðstír sinn.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.